Sigurður Jón Einarsson

Velkomin

Ég heiti Sigurður J. Einarsson og er fæddur í Reykjavík árið 1938.

Ég er lærður skrifvélavirki og vann á árum áður við viðgerðir á ritvélum, bókhalds- og reiknivélum auk annarrar viðgerðavinnu fyrir fyrirtæki um allt land.

Árið 1995 fékk ég mikinn áhuga á svæðanuddi í kjölfar meðferðar sem ég fór sjálfur í og í framhaldinu ákvað ég að hætta í vélunum og snúa mér að því að aðstoða aðra við að ná bata á sama hátt og ég hafði upplifað.

Ég lærði svæðanudd hjá Nuddskóla Reykjavíkur og lauk því námi 1996. Þá tók við framhaldsmenntun erlendis og ég lauk faglegu og verklegu námi í höfuðbeina- og spjaldhryggjöfnun frá The College of Cranio Sacral Therapy í London 1998 og síðar námi frá ECBS, The European College of Bowen Studies in London 2002.

Ég stundaði nám í EFT, Emotional Freedom Techniques, í New Age-skólanum í London frá 2004 til 2005, og í Bowen-íþróttameiðslum í European Colleague of Bowen Studies frá 2005 til 2006.

Í febrúar 2009 fór ég í framhaldsnámskeið þar sem tekið var á astma og  öndunarfæra-vandamálum undir leiðsögn Alastairs Rattary frá European College of Bowen Studies.

Í mars 2010 lauk ég svo námi í svonefndri TFT-greiningarþjálfun (Thought Field Therapy).

Ég rek nú meðferðarstofu að Suðurlandsbraut 8 (Fálkahúsið) og tek við tímapöntunum í síma 588 2192 (skrifstofa) eða 891 6892 (Gsm), auk þess sem ég hef unnið öðru hvoru í London við Health Ceare Center í Sydenham.

Ég hef einnig ferðast um landið og tekið fólk í meðferð samkvæmt nánara samkomulagi.

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Sigurður Jón Einarsson

Höfundur

Sigurður Jón Einarsson
Sigurður Jón Einarsson

Bowen- og EFT- tæknir.

Sjá nánar á heimasíðunni www.sigurdurjoneinarsson.com.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband